Færsluflokkur: Bloggar
16.4.2009 | 14:22
Í einfeldni - og þó
Nú ættu "aðilar vinnumarkaðarins" að nota tækifærið og skipta þeirri vinnu sem er að hafa í landinu milli þegna þess. Hvers vegna ekki að nota tækifærið og stytta vinnuvikuna þannig að hinum almenna vinnudegi lyki t.d. um þrjú leytið á daginn? Þannig yrði meiri tími fyrir allt hitt sem setið hefur á hakanum, börnin, afa og ömmu, áhugamálin, félagslífið..... Sannkallað "draumaland" með breyttum lífstíl!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.4.2009 | 10:51
"Þjóðaríþróttin"
Því hefur stundum verið haldið fram að það sé "þjóðaríþrótt" íslendinga að fara á svig við lög og reglur. Það virðist a.m.k. ekki vera nein leið til að láta menn fara eftir þeim reglum sem gilda um skil á gjaldeyri til landsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2009 | 10:33
Aumkunarvert
Já, í raun fannst mér það aumkunarvert af sjálfstæðismönnum að láta fyrrum formann sinn einan taka á sig alla ábyrgð af móttöku himinhárra "styrkja" til flokksins, og það nánast á sjúkrabeði. Reyndar var framkvæmdastjórinn, sem á umræddum tíma var nýkominn til starfa, líka látinn segja af sér, en eins og gjarnan er sagt: "come on", flokksforustan hlýtur bara að hafa verið betur meðvituð um svo stór mál innan síns félags, þ.m.t. núverandi varaformaður, eða fylgdist fólk bara ekkert með þegar að tugmilljónir streyma í kassann á örfáum dögum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2009 | 10:20
Um ábyrgð
Stjórnendur bankanna báru vissulega ábyrgð á HRUNI BANKANNA, en það hljóta að hafa verið íslensk stjórnvöld sem báru ábyrgð á EFNAHAGSHRUNINU sem fyldi í kjölfarið. Þetta tvennt er í mínum huga alveg aðskilið, en þvældist ótrúlega fyrir mörgum, og gerir jafnvel enn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2009 | 17:02
Mitt fyrsta blogg
Sælir lesendur!
Til að byrja með hef ég sett mér það markmið að vera stuttorður og meitla hugmyndir mínar og skoðanir í örfáar línur í hverju tilviki, við sjáum svo til hvað úr þessu verður hjá manni....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)